Aprílgabb

1. apríl kominn og farinn eða því sem næst.  Fjölmiðlarnir voru með aprílgabb á hefðbundnum nótum - bjórsmakk í Kringlunni og útsala á merkjavöruhúsgögnum fyrir þá sem misstu af góðærinu.

Sjónvarpið reyndi að senda okkur niðrí húsgrunn Björgólfanna á hafnarbakkanum.   Þar áttu menn að hlusta á lögreglukórinn syngja til ágóða fyrir fíkniefnadeildina sem finnur gras alla daga.  Fréttin var studd tóndæmi sem gaf ekki sérleg fyrirheit um gæðakonsert.

Mér fannst yfirbragð lúið og lasið
á lögreglukórnum og fasið
allt á þann veg
að álykta ég
að reykt hafi greyin allt grasið.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Limruleikur

Höfundur

Jóna Guðmundsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband