Frekjurgangur

Í útvarpinu var í morgun sagt frá ótrúlegum frekjugangi Akureyringa.  Fullorđnir menn ţar á bć stunda ţađ ađ reka smákrakka af sparkvöllum bćjarins til ađ ţeir sjálfir geti leikiđ sér međ bolta.  Ţetta var dramatísk frétt og ég sá ţá fyrir mér koma brunandi á Landcrusierum og Pathfinderum, leggja undir rólunum og reka grenjandi krakkana heim.

Fortíđar- fullir af -ţrá
ţeir fara á kvöldin á stjá:
Á skólanna velli
ţeir skunda í hvelli
og bćgja ţar börnunum frá. 

Sennilega sömu kallar og röfla svo yfir ţví ađ ćskan nú til dags nenni engu nema ađ hanga inni í tölvuleikjum.

Annars voru frábćrar myndir Moggans í morgun af landsfundinum í höllinni.  Grćnar rómantískar hlíđar, hreinleiki og fegurđ.  Vantađi bara ađ flokkurinn ályktađi um nauđsyn ţess ađ allir fćru á grasafjall í haust.

Viđ erum flokkur á grćnni grein
sagđi Geir og fékk ekki andsvör nein.
Ekki liggur á liđi
sínu, leikrćnn sviđi
og leiktjöldin minntu á Skugga Svein.

Nú verđur spennandi ađ sjá bakgrunn Ingibjargar í Egilshöllinni -



« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Limruleikur

Höfundur

Jóna Guðmundsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1127

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband