28.2.2007 | 23:21
Baugur og spaug.
Það er nú varla neitt spaugilegt við Baugsmálið lengur. Allir - og þá meina ég allir - hljóta fyrir löngu að vera komnir með upp í háls af þessum farsa sem er settur upp í Héraðsdómi alla virka daga frá 9 til 5. Reyndar eru menn í augnablikinu ögn spenntir yfir nýjum gestaleikara en rætt hefur verið um að fá hinn sívinsæla Dabba til að taka að sér lítið en áhrifamikið hlutverk. Vonandi fær það sápuna til að freyða í nokkra daga:
Í Baugsmáli beita menn orðum
þó berjast helst vildu með korðum.
Nú inn vilja labba
láta hann Dabba
sem lét ekki múta sér forðum.
Annars vekur það mér helst furðu hvernig hægt er að spyrja menn út í fundi og samræður mörg ár aftur í tímann. Það er að minnsta kosti eins gott að ég reyni að halda mig utan réttarsala því ég yrði strax dæmd fyrir fákænsku og minnisleysi. Ég man ekki fyrir horn og hvað gerðist vorið 2002 veit ég ekki fyrir mitt litla líf. Ég hugsa að ég gæti helst giskað á að það árið hefði skírdag borið upp á fimmtudag.
Vakið það furðu mér fær
hve fjölbreytt orðin og tær
útúr þeim buna
sem allt virðast muna;
sjálf öllu hef gleymt frá í gær.

Um bloggið
Limruleikur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.