Allt við það sama?

Af stjórnarmyndunarviðræðum er fátt nýtt í dag.  Helst skilst manni þó að Geir sé farinn að ráðstafa ráðherraembættum til Framsóknar og að þeir eigi að fá minnst fjóra ráðherra og una svo glaðir við sitt. 

Sína maddömu glaður vill gilja
Geir, sem er erfitt að skilja:
Ætla má að
athæfi það
gangi þversum á þegnanna vilja.

Furðulegt finnst mér hvernig hægt er að líta framhjá úrslitum kosninga ef þessi verður niðurstaðan því eiginlega kom bara eitt út úr kjörkössum að þessu sinni:  Þjóðin hafnaði Framsókn og tveimur af sitjandi ráðherrum var sparkað út án þess að það virðist breyta nokkru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Limruleikur

Höfundur

Jóna Guðmundsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband