Ekki fréttir

Í ekki fréttum dagsins er það helst að Jón formaður og Guðni eru aðeins að róast og virðast hafa tekið sér helgarfrí frá voli og væli þó ég óttist að þeir mæti tvíefldir til leiks á mánudag. 

Westur í Ameríku stendur hinsvegar Bush í ströngu og leitar að eftirmanni Wolfowitz í Alþjóðabankastjórastöðuna .  Skyldi Bush gera sér grein fyrir því að fyrrverandi bankastjóri íslenska seðlabankans er á lausu?  Við erum nú einu sinni stórvinir og á lista viljugra þjóða ef út í það er farið.

Það flaug í minn heimska haus
nú hugsun, að staða er laus
hjá Bush fyrir Jón
sem bætt getur tjón
og við losnum við röfl hans og raus.

Annars greindu fréttir í kvöld frá því að bæði BB og Árni Johnsen hefðu verið færðir niður um eitt sæti á framboðslistum í kjölfar útstrikana.  Þar með má gera ráð fyrir að þeir séu í sama báti og að ráðherrasæti gætu gengið þeim úr greipum fyrir vikið. 

Nú fer klárlega gaman að kárna
og karlinum Birni má sárna.
En huggunin megn
er harmi þó gegn:
Hann deilir kjörum með Árna.

Loks er það að frétta að allt mun vera í fínu lagi hjá kærustuparinu Imbu og Geira.  Þau hafa eytt helginni saman, því loks þegar stráknum tókst að góma þá sætustu, kaus hann að nota sér það út í æsar; hann fór með hana í bústað. 

Ég lengi að dæmunum leita verð
og líkingamálinu beita verð
en ákafur Geir
vill endalaust meir
og fór með þá sætust í sveitaferð.

Vonandi að heilnæmt sveitaloftið hafi góð áhrif á sambandið.

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Limruleikur

Höfundur

Jóna Guðmundsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband