Ný útrás

Alltaf er gaman að heyra af Íslendingum sem eru að gera það gott í útlöndum.  Nú í dag komu fréttir frá Danaveldi um nýjan sjónvarpsþátt sem á að skarta alvöru íslenskum sálfræðingi.  Hann á þar að meðhöndla fólk með "einkenni áráttu-þráhyggju röskunar".  Eins gott að áráttuþráhyggjan tengist ekki yfirtöku Íslendinga á öllum helstu fyrirtækjum Kaupmannahafnar.

Ef Danirnir ganga af göflunum
þá gott er að  lækna með töflunum
sem að þeir fá
að sjálfsögðu hjá
íslensku útrásaröflunum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Limruleikur

Höfundur

Jóna Guðmundsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband