9.9.2008 | 22:57
Linfrómur og afstæður?
Það er ekki ofsögum sagt af Árna Johnsen. Nú guggnaði hann á því að fara í mál við Agnesi Bragadóttur og sendir frá sér tilkynningu þar sem hann "fyrirgefur henni" um leið og hann atar hana auri sem mest hann má.
Frasarnir sem hann notar í pistli sínum virðast að mestu heimasmíðaðir eins og það að segja að Agnes hafi verið "linfróm í mannasiðum" og hún eigi "brjóstgóða takta þannig að hennar svið er vítt og vinalegt á margan hátt þótt slíkt sé alltaf afstætt í stærðum". Þetta minnir mest á tæknilegu mistökin frá því jarðvegsdúkurinn skrapp óvart um borð í Herjólf hér um árið.
En það verður gaman að spjalla um þetta í kaffinu í fyrramálið.
Þjóðina karl hefur kætt
í kaffinu á morgun mun rætt;
hvað hann á við
með vinalegt svið
sem af- er í stærðunum stætt
Ég held nú samt að hann hafi farið yfir strikið núna?
Ljóst er að skriplar á skötu
er skíthroði eys upp úr fötu
hinn linfrómi Árni
þó ljóslega sárni
og líkist helst bilaðri plötu.
Eða kannski tekst honum í eitt skipti að þagga niðrí þeim sem ekki eru búnir að gleyma jarðvegsdúknum og muna ekki eftir syndakvittuninni sem hann gengur með upp á vasann....
Skyldi nú verða loks værð um
vafagemsann sem kærðum
við okkur lítt um
löngum og víttum
sem af- er þó stætt eftir stærðum?
Um bloggið
Limruleikur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
haha, ég gúgglaði "linfrómur" og lenti á þessari sallafínu síðu!
skemmtilegt, fæ að bæta þér inn á tenglalistann minn, nema þú mótmælir kröftuglega og í bundnu máli
baun, aka Beta fyrrverandi svilkona (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 19:57
Sæl Beta mín.
Auðvitað er mér heiður að því að vera á tenglalistanum þínum. Ég skoðaði þína síðu og sé að þú ert í góðum gír sem fyrr.
Jóna Guðmundsdóttir, 15.9.2008 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.