25.9.2008 | 22:51
Hreppaflutningar
Skjálftarnir miklu á Suðurlandinu í sumar höfðu í för með sér meira en sprungur í malbiki og brotið leirtau. Í ljós hefur komið að í hamaganginum færðist Selfoss um heila 17 centimetra til austurs.
Selfoss með fumi og flaustri
fluttist í áttina að Klaustri.
Fagna þar menn
og finnst vera enn
fegurstur roðinn í austri.
Guðni gæti lent í því að bjóða sig fram í Austurkjördæmi áður en hann gefst gefst upp.
Um bloggið
Limruleikur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.