19.12.2008 | 00:06
Sögustund
Aldrei hef ég lćrt latínu en kann ţó örfá orđ, Eitt ţeirra er pereat sem mun ţýđa "farist hann" eđa kannski ađeins mildara "niđur međ hann". Ţetta hrópuđu skólapiltar Lćrđa skólans ţegar Sveinbjörn Egilsson rektor vildi skylda ţá til ađ ganga í bindindisfélag. Ţađ tókst hjá ţeim - ţeir losnuđu viđ kallinn og félagiđ líka minnir mig.
Sem kunnugt er endurtekur sagan sig og í gćr eđa fyrradag fóru nokkur ungmenni (og Jón Gerald) inn í Landsbankann í Reykjavík og hrópuđu niđur međ Tryggva Jónsson, sem var jú einn af ţeim svćsnustu í útrásinni. Hann var hinsvegar kominn sćll og glađur á ríkisjötuna međ fast starf í hinum nýja banka. En ekki lengur ţví hann var hrópađur niđur og hćtti í kjölfariđ.
Pereat iđka menn enn um sinn;
ćstur fór múgur í bankann inn.
Tryggvi varđ mćddur
og trúlega hrćddur
ţví tekiđ hann hefur nú pokann sinn.
Svo er bara ađ vona ađ hópurinn drífi sig upp í Seđlabanka međ viđkomu í Stjórnarráđinu.
Um bloggiđ
Limruleikur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sćl og blessuđ Jóna! Gaman ađ lesa limrurnar ţínar. Fékk bókina ţína líka senda frá Íslandi. Til hamingju međ hana. Var í allan morgun ađ lesa og skemmti mér konunglega.
Ég hef aldrei fengist viđ limrusmíđar, en eftir allan lesturinn í morgun varđ til ein. Mér hefur veriđ svo mikiđ hugsađ til allra mótmćlanna á Íslandi. Ekki svo auđvelt ađ botna í ţeim öllum. Til dćmis ţegar Bubbi stóđ fremstur í flokki á Austurvelli sem talsmađur lítilmagnans. Ég sá hann meira fyrir mér í bílaauglýsingum ţar sem hann var ađ reyna ađ fá almúgann til ađ fá sér bíl á 100% láni. Ţví varđ ţetta til:
Á Austurvelli voru mótmćli há og hvell
ţar harmađi Bubbi mikinn skuldaskell
Ţetta er agaleg kreppa
fyrir okkur á jeppa
á útlendu bílaláni frá B&L.
Kveđja, Elli.
Erlingur Nielsson (IP-tala skráđ) 21.12.2008 kl. 18:33
Sćll Elli
Gaman ađ heyra frá ţér og frábćrt ađ ţú sért kominn í limrugerđarflokkinn.
Sammála ţér ađ mér finnst Bubbi lítiđ trúverđugur mótmćlandi. Hann mun vera kominn á mála hjá Toyota og keyrir núna Land Cruiser (Grand Looser) í bođi umbođsins ef marka má íslensku blöđin.
Biđ ađ heilsa öllum - geri ráđ fyrir ađ allir séu heima um jólin?
Jóna Guđmundsdóttir, 21.12.2008 kl. 21:26
Sćl Jóna. Jú, mikiđ rétt, allir heima um jólin. Óska ykkur öllum gleđilegra jóla!
Erlingur Nielsson (IP-tala skráđ) 24.12.2008 kl. 12:49
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.