22.2.2009 | 22:45
Við upphaf lönguföstu
Ég settist áðan með Passíusálmana og ætlaði að fylgjast með hvað Silja væri komin langt. Ég var alveg búin að gleyma því að þeir eru ekki lesnir á sunnudögum. Veit reyndar ekki hvers vegna?
En ég fann mér aðra píslarsögu. Aðalfrétt mbl. nú í kvöld var um Björn Bjarnason og bloggfærslu hans um prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu Alþingiskosningar. Þar bar hæst að Guðlaugur Þór tók í prófkjöri af honum sæti sem hann taldi sig eiga. Ég kíkti á síðuna og þessi píslarsaga er ekki síðri en sú sem Silja er að segja frá þessa dagana.
Á blogginu hefur Björn nú rætt
um böl og pínu er hefur mætt:
Honum gramdist er fór
Guðlaugur Þór
og yfirtók sæti merkt Engeyjarætt.
Skemmtilegur flokkur þessi Sjálfstæðisflokkur en ég gat ekki séð að Björn minntist neitt á útstrikanir í sjálfum Alþingiskosninunum - eru þær kannski bara misminni mitt?

Um bloggið
Limruleikur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.